Færslur

blogg er fíkn. slysaðist fyrir einhverjum árum inn á þetta þrugl og sú póesíuþvæla sem fyrst flæddi hér varð fyrir bruna sex að morgni eitthvað árið. og hví er ég þá enn hér væflast, jú þurfti fix og hoppaði aftur inn í sódann minn. ég veit þó um marga aðra fíkn sem er mun meiri ekstasía en þetta daður við framhaldsdauða. en í dag fór ég í vinnunna og íhugaði að láta þetta verða minn síðasta dag .... í sko þessari vinnu. ég hitti dásamleg frændsystkyni sem ósuðu bæði af sjarmerandi visku sinni. og já ég tók þátt í veruleikaleik nokkrum og fannst lífið bara nokkuð framandi þarna mitt á milli. svo var ég foreldri í bingói líka og við unnum sippuband. stórkostlegt. þegar ég var spurð hverjar mínar framtíðarhorfur væru þá sprakk ég úr hlátri. tjahh....kannski er það ekkert fjarri lagi. ég fór alla vega ekki að gráta. annars sagði áttræður frændi minn að hrafnarnir væru á sveimi og það væri óþarfi að óttast það að vorið kæmi ekki. það hefði bara fengið sér hænu til 1. maí. jájá og þá hefst ...

NANCY SINATRA - Sugar Town 1967

i´ve got some trouble but they won´t last.... snilld snilld snilld
nei ég hef ekki verið hlekkjuð við tryggingarsölumann í dag og nei ég hef ekki þurft að fara til tannlæknis að láta rífa úr mér tönn og aftur nei ég hef ekki verið bænheyrð og þó og þó þú veist og veist best að sleppa sér

Cat Power-Where Is My Love?

það er gott að láta þrífa á sér hárið. halla sér aftur í stólnum og lygna aftur augunum. það er svo margt sem er gott og þetta er á gott-listanum. húð, hendur og hár.
Mynd
umfram allt er þessi dagur alltaf fallegur í hugsuninni og því er ekki verra þegar sú fegurð fær að flæða enn lengra líst vel á vorið sem er að koma, ég finn það, líst vel á þetta sumar, já og alla aðra fallega og brothætta óvissu gleðilegt sumar elskurnar mínar kærar

Beth Gibbons - Tom The Model

dásamlegt lag var húkt á því hér um árið alveg titrandi örvæntingarfull fegurðin