bræddar sálir bragðast betur

gangstéttirnar mættu alveg vera fullar af glóðuðum steinum
ég myndi bara spígspora yfir eldinn og láta sem ekkert væri
brenna upp leðrið á jörkunum og góla við fulla tunglið
áður en ég breyttist í úlf eða andskotann sjálfan
guð verður ekkert hræddur
engin blóm til að tína í vönd
enga vitleysu
enga vitleysu
kantskorinn tilverurétturinn hefur ákveðið að láta fólk ganga í gegnum hreinsunareldinn fyrir dauðann
komst að þeirri niðurstöðu að það væri ekki til neins að bíða dauðans
notum nóttina
notum lífið
njálgurinn kemur og fer
kemur og fer
engin brunalykt
allt í gamni gert
smá eldur
reykur
bruni
hvaða hvaða
hættu þessari dramatík segir tilverurétturinn
be a woman

Ummæli

krumma sagði…
hva mín búin að endurinnrétta? hvernig væri að bjóða manni í kaffi?
Fía Fender sagði…
hér er hægt að fá að hringja til útlanda og horfa á einn sjónvarpsþátt frá árinu 1979 - vertu velkomin elskan

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal