"You just keep going."

Manstu eftir þessari kvikmynd? Ég man alltaf þessa setningu. Hún festist við mig og dúkkar upp á ólíklegustu stundum:
"Damaged people are dangerous because they know they can survive." Það er líkt og þessi orð elti mig uppi. Ég stend á þröskuldum og í svörtum fjörum og þreifa mig áfram yfir í birtuna hinum megin við sjóndeildarhringinn. Yfir til þín. "Damaged people are dangerous..." og fingur mínir verða að stórum vatnsfaðmi og augu mín fyllast af hvítfyssandi söltum tárum úr sjó.

Síðan ferjar þú mig aftur að landi og ég reisi mig við og rölti upp úr steingrýttri fjörunni. Svíður í augun af salti og ljósi.
Þegar heim er komið finn ég fyrir drunga í sálinni minni en það er allt í lagi.

Það er allt í lagi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal