Nú hefst vika ástar og lotningar. Hún byrjar með smjörkremi. Mjúku og sætu. Vikan er sólrík sérlega og dreifir smiti sínu undir skinn þitt.

Þrjár mjög mikilvægar og einstaklega fallegar manneskjur í mínu lífi eiga afmæli í viku ástar og lotningar.

- Stóri bróðir minn

- Dóttir mín frumburður kær (einnig amma mín sálug sama dag)

- Sálusystir mín

Þetta getur nú ekki verið tilviljun. Þær finnast aðeins í formi tilgangs. Og þá er ég að tala um tilviljanir - það vill svo til að þær hafa vilja að ofan. Við nefnum engin nöfn en
ég bið ykkur um að vera tilbúin að móttaka áhrif ölvunar ástar og lotningar. Þau eru einfaldlega mögnuð og full af fegurð.

Meira síðar....alltaf mjög meira

Ummæli

krumma sagði…
ég meðtek ástina og sendi hana beint til baka, svo er það kampavín á föstudag
Fía Fender sagði…
dásamlegt

ástin móttekin

roger

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal