Í nótt dreymdi mig Michael Jackson í líki Dalai Lama

Hann var pakkaður inn í mikinn búning svo einungis sást í andlit hans og eina hönd. Hörund hans var fallega brúnt og fólk stóð í röð með silkitrefla til að fá að heiðra hann með handarbandi og silkiklút. Ég stóð í röðinni með hvítan klút og hafði áhyggjur af að hann væri krumpaður og að kannski væri lykt af honum. Mannalykt. Þegar röðin var að koma að mér þá gat Michael ekki meira af mannakontakt og með mikilli blíðu þokaðist hann í gegnum þvögu af fólksmaurum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal