það er svo gott að hafa svona sumar svo ósköp gott
tel daga niður í frí - þarf að vera svoldið þolinmóð

þangað til þá næri ég mitt blómablæti og kasta bakteríum leita að batteríum daðra við sjálfan mig og sýð nýveiddan fisk á kvöldin og opna dós af draumum með

ferja mig yfir í dalinn þinn þar sem sjaldgæfustu blómin þessi dýrmætu vaxa
vaxa á mér hey og fæli burt híenur þegar þær sækja að

frem fögnuð og fjandinn skal eiga mig ef ég berst ekki við þig kálfur hálfur af ormétnum ótta

sumarið mitt er væntingarlaust og birtan vekur mig birtan svæfir mig birtan faðmar mig birtan strýkur vanga

vær ég skal vera þessi mær ástin mín þú veist að allt fer vel allt endar í fagradal

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal