fór að vinna í morgun og litla skottan kom með til að vera mér til skemmtunar.
jú og eftir nokkra tíma á hlöðunni var haldið í kringluna og svoldið af góssi keypt í sjoppum þar til að geta mögulega fegrað sig og aukið á yndi. þetta var hin ágætasta ferð og kortið ágætlega straujað en eftir að heim er komið með bónuspoka, nýja tösku, snyrtivörur og fleira í þeim dúr þá er ég eins og dauðyfli. aum og ómögulega þreytt en en en þó sátt við hið blessaða veraldlega stúss. mér varð hins vegar á að líta í spegil og brá all svakalega. hvað er að gerast - where is my style??? haaaa... og ég sem borða svona líka mikið af grænmeti og fer fjórum sinnum i viku í ræktina og er öll jurtuð upp. eiheins gott að ég var að bjútítjútíast þarna miðaldra í mollinu.

en skottan litla er enn syngjandi hress alveg frá því í morgun og það er hreint svakalega hressandi.

Ummæli

krumma sagði…
kringlan drepur natural beauties eins og okkur elskan

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal