flekklaust
flandur
jájájájá segir hún fía fender

safapressan mín er í geymslunni
hvítvínið er í ísskápnum
akureyri á sínum stað
rútan skröltandi um
lundareykjadalur í felum
ástin pökkuð inn í hvítt lín ofan í skúffu
skaðræðis börn
elskurnar mínar mjá mjá mjá
kjötsúpa
og meira lamb
á diskinn minn
fallegar dömurnar
mjaðmirnar og allt það sko

"mamma mín er kominn dagur
má ég þá byrja að syngja núna
gerðu það mamma
bara fallegt lag fyrir þig"

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal