æh ég er skelþunn. var ekkert að spara þá oní mig rauðu drykkina í gær. reyndi að lesa hann marquis de sade svoldið. fór í jóga. aftur að lesa um hana justine og systur hennar juliette. varð ekki mikið úr verki. fór á menningarverðlaun og sturtaði í mig rauðvíni. arkaði um til bestustu vinkonu og svo kom vinurinn góði og við þrjú þarna eitthvað út að snarla og drekka meira rauðvín. jedúddamía. stundum skil ég ekki hvað ég drekk. og áfram á barina að drekka meira. áfram rautt. camparí. já og minn kæri koma og ég full. keyra aðra kæra vinkonu heim. borða pulsu. heim heim heim. í hlýja faðminn sinn. sofa. vaka. sofa. sofa sofa. í sturtu. á leikskólann og já hingað er ég komin í blessaðan árnagarðinn og mér er illt í hausnum og illt í maganum. borðaði banana og plómu og sturtaði í mig vítamínum. en fokk. lesa de sade áfram. hjálp. ætla að fá mér kók. æhh bara verð núna. og svo reyna aftur við justine. bless þá.
Bækur á meðan ég hverf
Nú tók ég upp á því að skrásetja eitt og annað frá október 2023 þegar ég setti búslóðina í geymslu og fór á vetrarflakk. Þar á meðal skrásetti ég hvaða bækur ég væri að lesa og/eða hlusta á. Les allt í bland og margar bækur á sama tíma, kláraði þær ekki allar en samt flestar. Mjög lengi með sumar og eins og elding með aðrar, eins og gengur. Ein og ein er ég að lesa aftur, og jafnvel aftur og aftur. Samt frekar sjaldgæft. Er enn að lesa sumar. Þetta færir mér einhverja undarlega ró, yfirsýn, landslag sem fer í gegnum mig. Tek upp kíkinn og sé bátinn færast framhjá og hverfa inn í mistrið. Mér finnst allt vera að hverfa, aðallega ég sjálf. Kassinn með jólaskrautinu er til dæmis horfinn. Jólakúlurnar frá ömmu og afa og nostalgían. Gufaði bara upp í flutningum og ákvað þar með að sinn tími væri liðinn. Með skrásetningar áráttu skil ég eftir mig spor. Lestrarspor. Bý til járnbrautarteina í gegnum tímann á meðan ég skrifa, hverf, skrifa, hverf, les, hverf, les, er horfin til allrar hami...
Ummæli