blaktir óeðlilega mikið í þessum gluggatjöldum. en sumarið með sín fölsku fyrirheit þykist mætt og það er nú ekkert annað en allt gott um það að segja. ekki ætla ég að vera að bölsækja ykkur heim hamingjusömu garmar. neinei ég skal syngja fyrir ykkur serenöður undir hverju einasta altani sem ég kemst yfir. og já það er margt áhugaverðra spjalla og fyrirlestra í dag og næstu tvo daga um fyrirbærafræði, fagurfræði, líkama svo sitthvað sé nefnt. gamangaman. ef ég kemst fyrir sjálfri mér. er hryllilega upptekin af því að vera hún ég. svo er ég með eitthvað lag á heilanum sem er með honum þarna hundingjahundinum eða hvað hann nú heitir. justify justify...jeee
Bækur á meðan ég hverf
Nú tók ég upp á því að skrásetja eitt og annað frá október 2023 þegar ég setti búslóðina í geymslu og fór á vetrarflakk. Þar á meðal skrásetti ég hvaða bækur ég væri að lesa og/eða hlusta á. Les allt í bland og margar bækur á sama tíma, kláraði þær ekki allar en samt flestar. Mjög lengi með sumar og eins og elding með aðrar, eins og gengur. Ein og ein er ég að lesa aftur, og jafnvel aftur og aftur. Samt frekar sjaldgæft. Er enn að lesa sumar. Þetta færir mér einhverja undarlega ró, yfirsýn, landslag sem fer í gegnum mig. Tek upp kíkinn og sé bátinn færast framhjá og hverfa inn í mistrið. Mér finnst allt vera að hverfa, aðallega ég sjálf. Kassinn með jólaskrautinu er til dæmis horfinn. Jólakúlurnar frá ömmu og afa og nostalgían. Gufaði bara upp í flutningum og ákvað þar með að sinn tími væri liðinn. Með skrásetningar áráttu skil ég eftir mig spor. Lestrarspor. Bý til járnbrautarteina í gegnum tímann á meðan ég skrifa, hverf, skrifa, hverf, les, hverf, les, er horfin til allrar hami...
Ummæli