hvað ef allt hangir á einni og sömu spítunni? púffff - best að fara að hlúa vel að þessari spítu. pússa hana upp og blessa í bak og fyrir. strjúka viðarspónirnar af ástríðu og hvísla fögrum orðum að henni.
ég hef þig í huga. bréfið fer sjóleiðina. þvælist um yfir líkfullt hafið. nokkur orð á stangli. drekkja sér í óminni og verða ef til vill veidd gegnsósa upp þegar næsti bátur á leið hjá.