we can beat them forever and ever

draumarnir eru aftur farnir að tala við mig. í nótt sagði draumurinn að nú myndi nýr kafli hefjast. ég steig út úr strætisvagninum og hljóp og hljóp og hljóp og í huga mínum heyrði ég að sjálfsögðu „we can beat them forever and ever“. þegar ég vaknaði fór ég í sjósund. á leið minni í átt að sólinni í gegnum kaldan sjóinn kallaði ég: taktu mig taktu mig. við það fann ég lófa þinn hlýjan og traustan.




Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal