Límónusunnudagur

Takið fram grænt glas á fæti. Gott að það rúmi nokkuð gott magn af vökva. Því næst er það bleikur sítrónukreistari úr plasti. Handfjatlaðu græna límónu af festu. Rúllaðu henni milli fingra og hugsaðu um salt. Því næst tekurðu beittan eldhúshníf úr efstu skúffu. Með einu handtaki vegurðu límónuna í tvennt. Þú kreistir safaríkt lífið úr báðum helmingum og hellir í græna glasið. Þetta stóra einfætta. Þá er það lokahnykkurinn. Þú fyllir upp að barmi með ísköldu sprikklandi sódavatni.

Fullkomnun í annars ófullkomnum heimi.

Ummæli

krummastelpa sagði…
besta auglýsing þessa áratugar
krummastelpa sagði…
sérstaklega af því maður veit ekki hvað er verið að auglýsa. límónur? sódastream? sódavatn? egils þá? … ? lífið er eilífðarenigma.
krummastelpa sagði…
finnst betra að hafa kommentin þrjú. fyrst það er desember. þetta er þá komment sem talar til hinna beggja. hið þriðja komment.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal