marsera niður göngin og klóra mér í kollinum alla leiðina. það er eitthvað dularfullt á seyði undir yfirborðinu. tálkninn á sínum stað ef þurfa þykir. draumarnir ólmast um. raddirnar á botninum bregðast ekki við áreiti. tónlistin hrúðruð eftir þolinmæði áranna. vertu alltaf hjá mér. í hjartanu býr glæta sem klórar sér í lífsviljann og veltir steinvölum með serenöðusöngli. sótarinn fær sér appelsínur í morgunmat. pósturinn biður að heilsa.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal