skordýraeitur á himni


sandstrókur og slæðusléttur framundan með uppáhellingu við höndina
drep mig aftur með samfélagsflugusuði og flugnaspaði sléttunnar brotnar í spað
af tilhugsuninni einni saman
einni saman
umfram allt saman sagði kallinn og lagðist í grænt grasið ímynduðu landi stjörnubjartra nátta
lokar augunum og sér naktar konur dansa í kringum myndarlegt lauflaust tré
samuel beckett hefði átt að sjá þetta hugsar hann
þá hefði hann grátið og búið til fleiri rósir í eyðimörk
skordýraeitrið lifir í þér

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal