hallelúja

nýja lífið og gamla lífið verða að fallegum bræðing
eitt skref í einu já

takk og aftur takk fyrir mig
ég meina það

af hverju dreymir mig hár?
eitthvað í mér og eitthvað í þér.
dreymir fallegt hár og ljótt hár. of mikið af hári. hár sem þarf að klippa. hár sem þvælist fyrir. hár sem minnir á fortíðina. hár á karlmönnum...

hvað er hár í mínu lífi? hár vex eftir dauðann. og ég sem er komin með hár á hökuna.
jú mér hefur nú alltaf fundist hár svoldið mikilvægt. er ekki svo mikill raunveruleiki í hári? úr einu örmjóu hári má greina mengi lífs þíns niður í smæstu einingar.

hárið lifir samt sjálfstæðu lífi. breytir litum þegar því sýnist. dettur af. þynnist og þykknar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal