værðarleg skref mikilvægra daga




það var kominn nóvember og ég hætt að hugsa um dagana. uppþvottavélin tók af allan vafa um mikilvægi tilveru sinnar og stúlkurnar púsluðu lífinu inn í kryddbrauð og klippimyndir. lífið var betra en áður og vasahnífurinn kominn í skúffuna. fulla tunglið skapaði hrúður sem vindurinn feykti af.

sveitaferð og rómantík ýtir myrkrinu úr vör og værðarlegt rauðvínsbrosið læðir sér yfir móana.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal