allt skrifstuð sem einhvern tíman hrjáði mig er horfið - líklegast for gúd svo að unglingaljóðrænan sem bjó í skúffunum er gufuð upp. hún hefur líklegast keypt sér nýja gönguskó og farið á hálendið og sleppt skúffufagurfræðinni þar lausri eins og aska nýlátinnar (tja eða löngu látinnar). eftir stendur bara náttúra og raunveruleiki. en ég bý svo vel að því í dag að hafa marínerað kjúkling yfir nóttina sem og bakað dýrindis muffinskökur (sykur, hveiti og mjólkur lausar nota bene). þannig að sunnudagssteikin blessuð var framreidd í hádeginu og svo var arkað um í þessum djeskotans kulda og aftur heim að borða ananasmúffurnar góðu. annars leiðist mér margt og er full af gremju. þurfti bara að skrifta því hér niður á galgopans alnetið. og þá er það komið. og já það verður gott þegar þessi mánuður verður búiinn. andskoti mörgu áorkað - skulum við vona - þegar 1. apríl rennur í hlað. jájá núið bla bla bla - sama er mér.
Ummæli
það sáu þetta allir í gær
ég er mjög fúl útí dani, þeim er sko aaaaalveg sama um okkur get ég sagt þér, já þeim var það líklega alltaf
en jájá ég er gærdagsins kona
dreg skuggann á eftir mér