æhh missti af jóganu mínu í dag
er glorsoltin
varla drukkið né etið liðlangan daginn
er enn illt í nýranu
fór á barinn í gær og það voru örfáar hræður
allir heima að gráta
best ég fari líka heim að gráta
borði hafragraut með söltuðum tárum út á
klóri mér í taugunum
stungan stungi
þú ert stungi minn í staðarstað
er að leeeeka niður af stólbakinu
færi ykkur þjóð minni eitt nýra að gjöf
hreinsunaraðgerðir um allar jarðir
ekki þverfótað fyrir nýrum kannski
er að springa úr óþreyju
spennutreyjukastið hitar mig upp
leeeek af stólnum
með hálft nýra fyrir snöru
hálft nýra fyrir tré
gróðurlegur ilmur undir húsinu þínu
passaðu nú ræturnar elsku vinur
passaðu líka lungun
það gæti hlaupið bólga í berkjurnar
óða sóða bólga
þú veist
jæja - berið þið vless
og sjá sandur á milli bólginna tása
haaaa

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Bækur á meðan ég hverf

Madrigal