þið eruð að hverfa
það er svo undarlegt
hvernig mold verður loft

það er enginn fótur
engin hönd
ekkert auga

hvar er húðin þín

blanchot, foucault já og fleiri dirrindí
ástirnar mínar
svona er þetta með ástina
hún gufar bara upp
ég elskaði þig aldrei baudrillard
nei þú áttir aldrei hjarta mitt
tókst mig ekki á eldhúsborðinu eins og artaud bak við rimla
ég næstum rænulaus með blóðnasir

sé ykkur samt
sé ykkur

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal