ég er búin að vígja baðið
það var mjög gott

takk þið öll mín
fyrir allt og allt
mjá
án ykkar væri ég barasta duft
svona að þyrlast um í loftinu
horfin í buskann
en neinei, ég er hér ljóslifandi af holdi og blóði
og líka af lofti og mold
það er nú nauðsynlegt

Ummæli

Bíbí West sagði…
Til hamingju elskan mín!!! Það verður, vænti ég, enginn hægðarleikur að lokka þig úr höllinni hingað í sveitina.
Sódavatn og súkkulaði hér, mmm... svona fer lobbylífið með mann he,he.. og kokkarnir, þessar elskur, eldandi oní mann glænýja rauðsprettu. Sælulíf með sóma og sann.
Við Vestanhnátur áttum yndishelgi. Fórum á æskuslóðirnar og skoppuðum í þúfum. Lögðumst í sinu niðri við á og rifjuðum upp sögur af kúasmölun og sundsprettum í ííísköldum ám. Og lömbin, shitt hvað þau eru sæt.
Fía Fender sagði…
shit lömb, þá kem ég. er með gæru á góflinu mínu í slotinu og þar ligg ég í fóstustellingu. missjú kreisí!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal