ég stend með sólina í höndunum lokuð augun lokuð hurð enginn gluggi bara eitt stykki sól í höndunum mínum það er heitt og ég fer úr þér mér þér hendi sólinni frá mér hún brotnar í þrjá litla mola út úr brotunum brestur og hrín refur eða rósarlegur ungi líkur ref með loðhúfu brestur og hrín enginn gluggi bara hiti og brotin sól þrír molar og refur að narta í bastteppi ég stend með þér og horfi á þú lokar augunum í lokuðu herbergi enginn gluggi bara þríein sólin og sandlaus auðn í stillimynd

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal