Sumarsólstöður 20. júní 2012 klukkan 23.09
Fróðleikur frá vinnufélaga:
Sólstöður eða sólhvörf er sú stund þegar sól fer lengst frá miðbaug himins til norðurs eða suðurs.
Sólstöður eru tvisvar á ári, sumarsólstöður á tímabilinu 20.-22. júní, þegar
sólargangurinn er lengstur og vetrarsólstöður 20.-23. desember, þegar
hann er stystur. Breytileiki dagsetninganna stafar fyrst og fremst af hlaupársdögum.
Nafnið sólstöður vísar til þess að sólin stendur kyrr, þ.e. hættir að hækka eða
lækka á lofti.
Ummæli