Hlutur forseta Íslands og siðferðileg ábyrgð
Ég held ég muni endanlega hætta að nenna þessu landi ef fólk hér með kosningarétt tekur upp á því að kjósa sama forsetann yfir sig næstu fjögur árin. 20 ár á valdastóli? Hver hefur gott af því? Fyrir utan það að hafa verið arfaslæmur forseti síðast liðin ár. Helst myndi ég vilja leggja þetta blessaða embætti niður. Jarða það djúpt í jörðu. En hér eru nokkur orð úr Skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um hlut forseta Íslands, summsé Ólafs Ragnars Grímssonar, í falli bankanna 2008: "Hann [ÓRG] þáði margsinnis boð útrásarfyrirtækja um að vera við opnun nýrra útibúa eða höfuðstöðva erlendis, flutti erindi á viðskiptaþingum sem skipulögð voru af bönkunum og skrifaði fjölda bréfa í þágu fyritækja og einstaklinga til erlendra viðskiptamanna eða forystumanna þjóða. Þótt forsetinn greiði almennt fyrir íslensku viðskiptalífi, samrýmist það illa hlutverki þjóðhöfðingja að hann gangi beinlínis erinda tiltekinna fyrirtækja eða einstakra fjárfesta. Útrásarmenn urðu tíðir gestir...