ég hamast í klámtextanum. reyni að finna þráðinn. mörkin. nóg af spurningum alltaf um allan ólifnaðinn í sálunum sem reynir að holdgerast í textanum. finn brundslettur birtast á milli línanna á milli þess sem ég hugsa um guð og ekki guð og guð og mann og konu og guð í þeim. það er kalt og sjórinn mjög fallegur. sól og sólir tvær að sækja mig.
mér tókst að brenna stóra bleika mynd af marilyn monroe sem var í hvítum ramma á vegg í miðri íbúð og stuttu síðar læsti ég litlu dóttur mína inni og sjálfan mig úti tensjón sú stutta er þó þekkt fyrir einstak jafnaðargeð og fannst þetta alveg óskaplega skemmtilegur leikur sem betur fer og náðum við með miklu brasi að koma lyklinum undir útirdyrahurðina og lauma honum af kyppunni - hún er algjör snillingur ég lá á gólfinu með kertaljós þar sem rafmagnið er farið af ganginum og þar með af útidyrabjöllunni og þetta hafðist þegar ég loks gat opnað inn þá stóð skottan dansandi og kallaði með tilþrifum og útbreiddan faðminn: ó mamma mikið ertu dugleg!!! stóra yndið skokkaði út í ísbúðina eftir svaðilfarir vorar við fengum okkur því ís og heita sósu og horfðum á korní ástarræmu fyrir fallegu fjölskylduna í sviðalyktinni
Ummæli