Luce Irigary - ég er forvitin í hana. Hef ekkert lesið hana en langar að já hm...langar að finna þetta þarna JÁ. Veit ekki hvort ég finni það þar. Ég er villuráfandi í þessu öllu saman. Held ég þurfi að fara að vinna við að mála handriði. Svona gömul handriði í stórum hættulegum stigum. Hugsa kannski um Three faces of Eve á meðan ég horfi niður eftir tignarlegum stiganum. Kannski ég vinnist aðeins meir hér og hökti mér svo af stað heim á leið. Baki þar brauð og knúsist í stúlkum tveim. Bæ.
mér tókst að brenna stóra bleika mynd af marilyn monroe sem var í hvítum ramma á vegg í miðri íbúð og stuttu síðar læsti ég litlu dóttur mína inni og sjálfan mig úti tensjón sú stutta er þó þekkt fyrir einstak jafnaðargeð og fannst þetta alveg óskaplega skemmtilegur leikur sem betur fer og náðum við með miklu brasi að koma lyklinum undir útirdyrahurðina og lauma honum af kyppunni - hún er algjör snillingur ég lá á gólfinu með kertaljós þar sem rafmagnið er farið af ganginum og þar með af útidyrabjöllunni og þetta hafðist þegar ég loks gat opnað inn þá stóð skottan dansandi og kallaði með tilþrifum og útbreiddan faðminn: ó mamma mikið ertu dugleg!!! stóra yndið skokkaði út í ísbúðina eftir svaðilfarir vorar við fengum okkur því ís og heita sósu og horfðum á korní ástarræmu fyrir fallegu fjölskylduna í sviðalyktinni
Ummæli
nei þetta eru skemmtilegar pælingar, svona ..kyn..leg...ar