nóvember nóvember nóvember bráðum búinn og allar skyldur hans og svo kemur ljúfi desember og ég verð með silkisvört blóm í hárinu
Færslur
Sýnir færslur frá nóvember, 2009
sunnudagssæलं í ofninum
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
mundu að vökva blómin elskan og gefa köttunum að borða og mundu að setja á þig varalit og fara líka út með ruslið. settu fyrst á þig varalitinn og farðu síðan út með ruslið. gerðu það elskan og vertu mærin frá hjónabandssælulandinu. vertu hún og keyptu þér nýjar nælonsokkabuxur. þegar frostið kemur og bítur þig í rassinn þá segirðu bara: bíttu aftur - ég er í nælon. fagrar eru lendarnar fagrar eru línurnar og rjómi með. þeyttur í höndunum ef hann myndi koma í heimsókn. líta við á svona sunnudegi. þá skaltu vera með varalitinn og í nælonsokkabuxunum búin að fara út með ruslið og þú verður alveg afslöppuð í fasi. því þannig á maður að vera á sunnudegi. með þeyttan rjóma í skál. unaður.
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Kaffiilmur, kertaljós og KK spilar morguntóna. Nokkuð korní barasta. En dásamlegt. Mynd gærdagsins segir allt sem segja þarf um þann dag. En í dag er allt betra. Hálsáverkarnir eru jú enn til staðar eftir að mitt alveg hreint ágæta garmslega hjól taldi sig hafa vængi. Læknar hafa tröllatrú á Íbúfeni. Feni já. Það er eiginlega sama hvað ég segi við lækna þeir stoppa mig í miðri setningu með orðinu Íbú....búhú...júhú. Svo ég tek bara mitt Íbúfen og drekk mitt kaffi. Og hér með viðurkenni ég að ég hlakka til jólanna. Þrá dagsins:
værðarleg skref mikilvægra daga
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
það var kominn nóvember og ég hætt að hugsa um dagana. uppþvottavélin tók af allan vafa um mikilvægi tilveru sinnar og stúlkurnar púsluðu lífinu inn í kryddbrauð og klippimyndir. lífið var betra en áður og vasahnífurinn kominn í skúffuna. fulla tunglið skapaði hrúður sem vindurinn feykti af. sveitaferð og rómantík ýtir myrkrinu úr vör og værðarlegt rauðvínsbrosið læðir sér yfir móana.