alltaf að hugsa um hana teresu. í svefni sem vöku. líkt og hún vilji segja mér eitthvað alveg magnað með sínum vökulu augum. þarf að hengja hana upp hjá mér og spjalla við hana. allar þessar konur í kringum mig. ætti að vinna gegn djöfulsins vanmættinum sem leggur sig mitt á hrörlega brú yfir í brjálæðislega birtu.
ég veit það ekki elskan. þori varla að hugsa lengur. hrædd um að eitraðar hugsanir mínar framkalli veruleikann veikan og vanmáttugan. en þá birtist hún alltaf fögur með augun sín djúpu. segir ekkert. horfir bara á mig álengdar. ég þori ekki að hugsa né biðja hana um að koma nær.
Ummæli