Já vatnið er gjöfult. Ég mætti vofunni hennar Fridu fyrir utan Sirkus á aðfaranótt sunnudags. Alveg satt. Hún hafði hvít blóm í hári og bleika sjálið náði niður fyrir mjaðmir. Þægileg tilbreyting að sjá konu í víðu, skósíðu pilsi ganga með stóískri ró upp Klapparstíginn, á þessum síðustu og verstu, á þessum tíma sólarhrings og vikunnar... á þessu blessaða skeri.
Madrigal Ég erfði dimman skóg þangað sem ég fer sjaldan. En sá dagur kemur þegar dauðir og lifendur skipta um stað. Þá fer skógurinn á hreyfingu. Við erum ekki án vonar. Alvarlegustu glæpir upp- lýsast aldrei þrátt fyrir viðleitni margra lögreglumanna. Á sama hátt er einhvers staðar í lífi okkar mikill óupplýstur kærleikur. Ég erfði dimman skóg en í dag geng ég í öðrum skógi, og hann er bjartur. Allt sem lifir syngur, hlykkjast, iðar og skríður! Það er vor og loftið ákaflega sterkt. Ég hef próf úr háskóla gleymsk- unnar og er jafn tómhentur og skyrtan á þvottasnúrunni. Tomas Tranströmer
Ummæli