það er engum blöðum um það að fletta að þetta er pjúra þráhyggja elskan
jee beibí beibí
þráhyggjan lifir eigin lífi sem æxli í þínum eigin huga utan við bólstað og festu sálarholdsins mikla
jee beibí beibí
la bruja la bruja
og konan með heilana tvo í sitt hvorum lófanum
elskaði garðyrkjumann
og garðyrkjumaðurinn kom í heimsókn hálfs mánaðarlega
jee beibí beibí
það sat tjörusmurð fluga á öðrum heilanum
nartaði lítið eitt maríneruð af sjálfum sér og þráhyggju
jee beibí beibí
réttu mér byssuna
réttu mér riffilinn kona
þeir eru að koma
þeir eru á eftir ÞÉR

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal