engin ljóð engir sandalar enginn ylur. stundum er blogg svo hryllilegt. fyrirboði íroníunnar. bráðum verður allt gott sagði hún og svo stökk hún út úr háum einmanalegum turninum og fann eyrun á sér kólna í gjólunni. hún hugsaði ekkert en sá að ljós og myrkur dönsuðu saman saman saman. og hún lokaði augunum til að sjá sig betur á flugi niður. á staðinn sem er þarna niðri þar sem ljós og myrkur hætta að dansa og molla umlykur tímaleysið. það er ekki þögn. það er suð þarna niðri. lítið eitt suð. ærandi suð. og algjör óþarfi að kalla á hjálp.
The Substance er meistaralega gerður hryllingur frá Coralie Fargeat sem er bæði leikstjóri og handritshöfundur. Ég var búin að hlakka til að sjá myndina og bjóst við að það yrðu fáir í bíó á mánudagskvöldi í leiðinlegu veðri og myndin búin að vera um nokkurt skeið í sýningum. Ég elska sko að vera ein í bíói. En nei, nei það var mjög gleðilegt að sjá allt þetta fólk í Bíó Paradís. Við Þula fengum okkur kók og popp og helltum strax heilu glasi af gosi niður á gólfið í sætaröðinni okkar. Þetta slímuga sæta gos sem rann um gólfið varð mjög einkennandi fyrir kvikmyndina. Þegar myndin var búin hafði gosið gufað upp en eftir var ósýnilegt klístur. Elisabeth Sparkle hin fimmtuga sykursæta stjarna í fitness og kvikmyndabransanum þar sem útlits- og æskudýrkun er allsráðandi, endar einmitt sem klístur á gólfi og hverfur að lokum endanlega. Framleiðandinn Harry sem minnir óneitanlega á Harry Weinstein skiptir þessari „gömlu konu“ út fyrir nýja og unga útgáfu. Í gegnum alla kvikmyndina hugsað...
Ummæli