Ástin og þú Myndavélin sem tekur myndir af lungum þínum elskar þig en þú tekur ekki eftir ást hennar. Eða jú. Þegar þú fórst úr bolnum og hörund þitt snerti í fyrsta sinn spegilslétt stálið, þá tókstu eftir ást hennar en gleymdir henni strax. Konurnar á bakvið myndavélina elska þig líka. Og framköllunartækið. Og ljósið sem lýsir bakvið nýju röntgenmyndina af lungum þínum. Fingurinn á lækninum. Línurnar, myrkrið og þokan sem búa til myndina. Þau elska þig. En þú ert bara ekki tilbúinn enn. Kristín Ómarsdóttir